91,4 fm. íbúð á miðhæð í steinsteyptu þríbýlishúsi ásamt 22,2 fm. geymslu í kjallara og 20,6 fm. hjalli.
Sameiginlegur inngangur er í húsið með miðhæð. Íbúðin skiptist í litla forstofu, hol, tvö svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, búr, baðherbergi og geymslu þar sem lagt er fyrir þvottavél. Suðursvalir eru út af stofu.
Flísar eru á sameiginlegu forstofunni, teppi á forstofu í íbúð, gólfborð eru á holi, stofum og öðru herberginu, dúkur er á hinu, parket er á eldhúsi og flísar á baðherbergi.
Góðar innréttingar eru á baðherbergi og í eldhúsi.
Neðsta hæð hússins er klædd með steni en tvær efri með álklæðningu.
Nýlegt þak er á húsinu.