97,8 fm. hlaðið einbýlishús á tveimur hæðum. Á efri hæð er forstofa, hol, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Teppi er á forstofu, nýlegt parket á holi, eldhúsi, stofu og herbergjum. Nýlegar flísar á baðherbergi Gömul innrétting er í eldhúsi en nýlegar borðplötur. Ágæt innrétting á baðherbergi. Skápar í hjónaherbergi en vantar á það hurðir. Á neðri hæð er þvottahús, geymsla forstofa og eitt herbergi með teppi.(ekki er full lofthæð á neðri hæð). Gengið er niður á neðri hæð úr holi en stigi er brattur. Geymsluloft er yfir húsinu. Nýir gluggar eru í framhlið hússins, nýlegt rafmagn, nýjar vatnslagnir og nýtt frárennsli frá baðherbergi. Skipta þyrfti um glugga og gler í stofu og eldhúsi. Ágæt lóð er við húsið. Að utan er húsið klætt með áli. Bílskúr er klæddur að innan, upphitaður og með 3 fasa rafmagni. Nýtt þak er á bílskúrnum.