137,4 fm einbýlishús byggt úr timbri árið 1984, svokallað "Asparhús"
Húsið sem er á einni hæð skiptist í forstofu, hol, eldhús, búr, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Flísar eru á forstofu, holi, baðherbergi, eldhúsi og búri. Parket er á stofu og tveimur herbergjum og korkflísar á tveimur herbergjum.
Ágætar innréttingar eru í húsinu. Innrétting í eldhúsi er nýleg og innrétting á baðherbergi hefur verið endurnýjuð.
Sólpallur er út af stofu. Heitur pottur er á pallinum og í garði er lítið garðhús.