225,7 fm. einbýlishús á tveimur hæðum með aukaíbúð.
Auðvelt er að breyta húsinu í eina íbúð.Neðri hæð hússins er steypt en efri hæð úr timbri.
Íbúð á efri hæð sem er samtals 137,1 fm. skiptist í forstofu, samliggjandi hol og eldhús, stofu, arinnstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Þá hefur rúmgott þvottahús verið innréttað í bílskúr.
Nýlegar flísar eru á forstofu, eldhúsi og holi. Flísar eru á baðherbergi, parket er á stofum og korkflísar eru á herbergjum.
Nýleg góð innrétting er í eldhús og góð innrétting er á baðherbergi. Úr arinnstofu er gengið út á rúmgóðan sólpall.
Íbúð á neðri hæð er með sér inngangi og er 88,6 fm, að stærð. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, samliggjandi eldhús og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Ágætar innréttingar eru á neðri hæð og á gólfum er parket og flísar.
Góð lóð er við húsið og hellulagt bílastæði og stétt framan við það.
Húsið býður upp á ýmsa möguleika.