296 fm. hús á tveimur hæðum byggt árið 1967 ásamt 67 fm. geymslubragga.
Á efri hæð hússins sem er skráð 123,7 fm. er íbúð og tilheyrir henni að auki 44,7 fm. geymsla á neðri hæð.
Á neðri hæð sem skráð er 128 fm. er nú bifreiðaverkstæði en þar var upphaflega verslun.
Gengið er upp í íbúð um stigahús og er þaðan innangegnt á neðri hæð. Íbúðin skiptist í stigapall, hol, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Parket er á holi og stofu, flísar eru á baðherbergi, dúkur á á herbergjum og slípaður steinn á eldhúsi.
Innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi eru nýlegar. Þvottaaðstaða er á baðherbergi sem er rúmgott.
Gengið er út á góðar suðursvalir af stigapalli.
Neðri hæð skiptist tvo sali, afgreiðslu, klósett og lagerherbergi.
Geymsluskúr (braggi) er hvorki upphitaður né einangraður.
Frá húsinu er ágætt útsýni. Mikið fuglalíf er í kringum húsið og er m.a. kríuvarp í nágrenninu.
Húsið er staðsett í nágrenni við höfnina á Rifi og býður upp á ýmsa möguleika t.d. í ferðaþjónustu.