117,7 fm. iðnaðarhúsnæði ásamt millilofti en heildargólfflötur þess er ca. 75 fm.
Í sama húsi eru tvö önnur rými.
Neðri hæð er einn salur en á millilofti eru tvö rými og er þar gert ráð fyrir starfsmannaaðstöðu svo sem skrifstofu, salerni og geymslu.
Á neðri hæð eru stórar innkeyrsludyr og tvær göngudyr.
Milliloftið er tilbúið til innréttinga.
Eftir á að leggja vatn og rafmagn í húsnæðið en öll inntök eru til staðar. Húsnæðið er kynt með hitaveitu og eru hitalagnir í gólfi.
Lóð er frágengin og er malbikað stæði framan við það.
Eignin er vel staðsett og býður upp á ýmsa möguleika. Auðvelt er t.d. að skipta eigninni í tvær eignir.
Óskað er eftir tilboði í eignina.