143,6 fm. neðri hæð í tvíbýlishúsi byggðu árið 1976 úr forsteyptum einingum ásamt 31,8 fm. bílskúr byggðum úr timbri árið 1987.
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, samliggjandi stofu og sjónvarpshol, eldhús, þvottahús, gestasnyrtingu, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Flísar eru á forstofu, holi eldhúsi gestasnyrtingu, baðherbergi og þvottahúsi en parket á öðrum gólfum.
Góð innrétting er í eldhúsi. Baðherbergi var endurnýjað árið 2016 og var þá skipt um innréttingu, tæki og gólfefni. Innbyggður skápur er í forstofu.
Gler í öllum gluggum nema einum hefur verið endurnýjað (2017-2020). Þá hafa vatnslagnir verið endurnýjaðar.
Bílskúr er einangraður og í honum eru nýjar raflagnir. (2021). Ný útiljós eru á bílskúr.
Lóð er gróin og er sólpallur út af stofu. Nýtt malbik er á bílastæði og nýjar drenlagnir eru við húsið. (2021).
Húsið stendur í skemmtilegu umhverfi mjög nálægt sjó og verður ekki byggt vestan við það..