141,6 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt 47,2 fm. bílskúr.
Húsið er á einni hæð skiptist í fordyri, forstofu, hol, sjónvarpshol, stofu, eldhús, þvottahús, svefnherbergisgang, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Flísar eru á forstofu og baðherbergi. Parket er á holi, svefnherbergisgangi, sjónvarpsholi og stofu, dúkur á eldhúsi og svefnherbergjum.
Ágætar innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi Skápar eru í öllum svefnherbergjum.
Lóð er frágengin. Hellulögð stétt er framan við húsið og steypt bílastæði er framan við bílskúr.
Úr þvottahúsi er hurð út á baklóð og þar er hellulögð stétt og heitur pottur. Þá er hurð úr stofu út í garð.
Bílskúr er tvöfaldur og er með sjálfvirkri hurð öðru megin. Bílskúrinn er klæddur að innan, einangraður og hitaður upp með tengigrind og affalli frá henni. Þá er ágæt geymsla í bílskúrnum.
Bílskúrnum mætti auðveldlega breyta í íbúð en þar eru allar lagnir til staðar.