198,6 fm. einbýlishús steinsteypt einbýlishús byggt árið 1971.
Efri hæð hússins sem er skráð 141,9 fm. skiptist í forstofu, samliggjandi hol og stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
Flísar eru á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi en parket á öðrum gólfum.
Ágætar innréttingar eru í húsinu en innrétting á baðherbergi er upprunaleg.
Skápar eru í forstofu, gangi og einu svefnherbergi.
Neðri hæð hússins er skráð samtals 56,7 fm. þar er bílskúr með sjálfvirkri hurð og innaf honum er íbúðarherbergi og baðherbergi.
Varmadæla er á efri hæð.
Aftan við húsið er góður sólpallur og þar er geymsluskúr, saunatunna og kaldur pottur.
Járn á þaki hefur verið endurnýjað.