205,1 fm. steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 37,7 fm. bílskúr byggt árið 1950.
Neðri hæð skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, hol, baðherbergi, eldhús, tvær samliggjandi stofur og þvottahús. Útihurð er á þvottahúsi. Flísar eru á forstofu og baðherbergi og nýlegar flísar á þvottahúsi. Nýlegt parket er á holi, stofum eldhúsi og öðru herberginu en eldra parket á hinu.
Efri hæð skiptist í rúmgott hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi og fataherbergi. Parket er á holi og fataherbergi, teppi á herbergjum en nýlegar flísar á baðherbergi. Svalir eru út af holi.
Góðar innréttingar eru í húsinu. Baðherbergi á efri hæð hefur að öllu leyti verið endurnýjað og nýlegar innréttingar eru í þvottahúsi.
Nýlegur pallur er við húsið (2020) og er gengið út á hann úr stofu.
Allir gluggar í húsinu og hurðir út á svalir og pall voru endurnýjaðar árið 2019. Neysluvatn var endurnýjað árið 2019. Þá var þak málað og rennur endurnýjaðar árið 2020.
Bílskúr er með sjálfvirkri hurð og í honum er geymsla.
Lóð er frágengin og er nýlegum þökum. Möl er í bílastæði.
Húsið er staðsett miðsvæðis í bænum og frá því er gott útsýni.