385. fm. steinsteypt hús á þremur hæðum byggt árið 1969 ásamt 30 fm. bílskúr byggðum árið 1970.
Húsið hýsti áður pósthús og símstöð.
Á götuhæð (miðhæð) eru þrjú rúmgóð rými sem áður hýstu afgreiðslusal, vinnslurými og móttöku pósthússins, kaffistofa og baðherbergi.
Á efstu hæð er 125 fm. nýlega endurnýjuð íbúð sem skiptist í hol, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og samliggjandi stofu og eldhús. Nýlegar innréttingar eru í íbúðinni og parket og flísar eru á gólfum.
Í kjallara eru forstofa, baðherbergi, eitt herbergi og þrjár geymslur (gluggalausar) og kyndiklefi. Hluti kjallara er leigður út undir símstöð.
Stigagangur er í húsinu og er gengið um hann upp á efri hæð og niður í kjallara. Innangegnt er af miðhæð á stigaganginn.
Bílskúr er sambyggður öðrum bílskúr og þarfnast hann viðhalds.
Malbikað bílastæði er framan við afgreiðsluhæð.
Á lóðinni er símamastur.
Húsið er staðsett miðsvæðis í Ólafsvík og hentar vel undir ýmsa starfsemi svo sem ferðaþjónustu.