208,7 fm. vörugeymsla í steinsteyptu húsi byggðu árið 1979.
Eignin skiptist í stóran sal með stórri innkeyrsluhurð og gönguhurð, skrifstofu, kaffistofu, fataherbergi og salerni.
Í húsinu eru bæði kæliklefi og frystiklefi.
Eignin er í góðu ástandi og eru innkeyrsluhurð og gönguhurð nýlegar.
Húsið er vel staðsett og hentar undir hverskonar starfsemi.