110 fm. frístundahús sem til stendur að byggja á lóðinni Arnarborg 19, Stykkishólmi.
Svæðið Arnarborg er skipulagt frístundahverfi í göngufæri við alla þjónustu svo sem verslun, veitingastaði, sundlaug og golfvöll svo eitthvað sé nefnt.
Húsið verður afhent í samræmi við teikningar og neðangreinda byggingarlýsingu:
ALMENN LÝSING: Frístundahús á staðsteyptum sökklum, staðsteypt gólfplata, krosslímdar timbureiningar í veggi og þak, einangrað og klætt með báru áli. Byggingin er í notkunarflokki 3.
Skipulag telur:
Frístundahús - Forstofa, stofa og eldhús í alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús og geymsla saman.
Frístundahúsið skilast fullbúið (samkvæmt skilaslýsingu, nema um annað sé samið) nema að lóð verður grófjöfnuð eins og við á og án veranda. Aðkoma og bílastæði eru með möl, enginn snjóbræðsla er á lóð.
Forstofa er með flísum og Mesister loftapanil
Alrými, stofa og eldhús er í opnu rými með útgengi út. Loft eru tekinn upp í alrýminu og er harðparket á gólfum. Innfeld lýsing þar sem það á við í t.d. Meister loftapanil. Eldhúsinnrétting er frá Ikea. Í innréttingu fylgir helluborð og ofn.
Svefnherbergi eru skilað án fataskápa en parket á gólfum, Meister loftapanil í loftum.
Baðherbergi er flísalagt gólf og inn í sturtu, gler aðskilur sturtu á einni hlið. Blönundartæki og sturtuhaus utan á. Veggir eru Fibo útlitsgerð F05 hvítar.
Arnarborg 19 er staðsett í þegar byggðu hverfi í Stykkishólmi. Hverfið liggur með strandlengju Breiðarfjarðar þar sem áætlað er að leggja göngustíga svo hægt sé að njóta náttúrunar sem Breiðafjörður bíður upp á. Stutt er í alla þjónustu í Stykkishólmi og golfvöll stykkishólmsbæjar.
GERÐ OG KLÆÐNING ÞAKS, FRÁGANGUR ÚTVEGGJA, GERÐ ÚTVEGGJA KLÆÐNINGA, GLUGGA, HURÐA OG LITAVAL HÚSS:
UNDIRSTÖÐUR OG BOTNPLATA:Undirstöður eru staðsteyptar sem hvíla á vel þjappaðri frostfrírri fyllingu. Botnplata er staðsteypt, einangrað er undir alla botnplötuna með 100mm EPS-einangrun. Utan á sökkla kemur 75mm EPS-einangrun.
ÚTVEGGIR:Útveggir eru Krosslímdar timbureiningar og 100mm harðpressuð steinullar einangru, loftbil og klætt með báru áli.
ÞAKVIRKI:Þak er krosslímd timbur burðarvirki, þakpappi, einangrað með 160mm (undirlagsplata 120mm og yfirlagsplata 40mm) steinull og svo tvöfalt lag af þakpappa með trékantlistum á yfirborði. Að innan er lagnagrind í loftum og loftaefni í flokki 1, t.d. Meister loftapanil.
GLUGGAR OG HURÐIR:Gluggar og hurðir eru tré, tvöfalt einangrunargler er í gluggum með sólstoppi. Gler er Top N+ einangrunargler, eða sambærilegt.
VERÖND:Búið að skipta um jarðveg undir verönd.
EINANGRUN: Sjá liði ofar.
INNVEGGIR: Léttir innveggir eru krosslímdar timbureiningar, klæddir með gifsi, spartlað og málað, Baðherbergi klætt td. með Fibo útlistsgerð FO5 hvítar
INNIHURÐAR: Hefðbundnar timburhurðar yfirfeldar td. Ringo hvítar.
Innréttingar: Eldhús innrétting samkvæmt teikningu. Ofn og helluborð innifalið. Baðinnrétting (140 cm). Frá Ikea.
Gólfefni: Flísar á baði. Harðparket á gólfum.
Loftaklæðning: Meister loftapanill frá Þ. Þorgrímsson, eða sambærilegt.
LOFTRÆSING: Loftræsing rýma er út um oppnanlega glugga. Enginn aflokuð rými eru í húsinu sem þurfa vélræna loftræsingu.
LAGNIR: Húsið er hitað upp með gólfhitalögn. Neysluvatnslagnir eru rör í rör og koma í gólf og milliveggi. Raflagnir eru lagðar á hefðbundinn hátt í veggjum og í lofti. Rofar og tenglar hvítir
VATNSÖFLUN: Húsið tengist vatnsveitu svæðisins.
FRÁVEITA: Fráveita tengist rotþró.
BRUNAMÁL OG FLÓTTALEIÐIR: Björgunarop eru út um útihurðir og út um björgunarop á gluggum í herbergjum.
HLJÓÐVISTARKRÖFUR: Ekki eru sérstakar hljóðvistarkröfur í húsinu
LÓÐ: Lóð grófjöfnuð. Búið að efnisskipta í bílastæði og möl í yfirlag.
AÐGENGISMÁL: Frístudahúsið er aðgengilegt eins og hægt er, þröskuldar á útidyrahurð og hurðum út í garð er ekki hærri en 2.5cm og þröskuldar eru á innihurðum eru felliþröskuldar, í eldvarnarhurðum þar eru þröskuldar sem uppfylla eldvarnarkröfur. Auðvelt er að breyta íbúðinni svo hún uppfylli algilda hönnun með óverulegum breytingum á innréttingum og léttum veggjum ef á þarf að halda.
SORPHIRÐA:Sorpaðstaða er í grendargámum
Innifalin eru öll gjöld tengd byggingu hússins önnur er skipulagsgjald sem legst á þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. Gjaldið er 03% af brunabótamati.