60 fm.bil í iðnaðarhúsnæði sem byggt er úr límtré og yleiningum árið 2020. Í húsinu eru 5 önnur bil.
Bilið sem er annað bil frá götu er einn salur.
Á bilinu er sjálvirk innkeyrsluhurð og gönguhurð.
Bilið er kynt með hitaveitu og er hiti í gólfi. Þá eru lagnir fyrir salerni í bilinu og í því er þriggja fasa rafmagn.
Lóð bilsins er 138 fm. skv. fasteignamati. Ekki er bundið slitlag á lóð.
Í heild lítur eignin vel út bæði að innan og utan.