80,2 fm. bárujárnsklætt timburhús á tveimur hæðum byggt árið 1930.
Húsið er á tveimur hæðum, ásamt risi, sem ekki hefur verið klárað að innrétta. Lítill gluggi er þar á gafli.
Tvö svefnherbergi eru neðri hæð, ásamt baðherbergi með baðkeri, þvottavél og þurrkara. Málað steingólf er á neðri hæð.
Á efri hæð er forstofa, þar sem gengið er til vinstri inn í stigarými, til hægri í stofu og beint áfram inn í stórt eldhús, þaðan sem opið er inn í stóra stofu Gólfborð eru á forstofu gangi og stofu en dúkur á eldhúsi.
Húsið stendur á félags- og þjónustusvæði samkvæmt aðalskipulagi og býður því upp á margskonar möguleika á rekstri.
Að sögn eiganda er húsið mikið endurnýjað.
Húsið er nú nýtt bæði sem sumarhús, og útleigu til ferðamanna.