111,4 fm.endaíbúð í steinsteyptu fjögurra íbúða raðhúsi byggðu árið 1980.
Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, gang, geymslu/þvottahús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Íbúðin var endurnýjuð að innan fyrir ca. 15 árum og var þá m.a. skiptu um innréttingar og gólfefni.
Góðar innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi. Skápar eru í hjónaherbergi og þar er hurð út í garð.
Flísar eru á forstofu, eldhúsi, baðherbergi og geymslu en parket á öðrum gólfum.
Sólpallur er sunnan við íbúðina. Lóð er gróin.
Skipt var um járn á þaki árið 2022. Nýlegur gluggi er í stofu.
Íbúðin er vel staðsett og í göngufæri við alla helstu þjónustu og hentar m.a. ágætlega sem orlofsíbúð.