Sumarbústaðalöndin Helluland og Helluland 2 í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.
Löndin eru tvær fasteignir og eru samliggjandi. Helluland er 25 ha. að stærð og Helluland 2 8,5 ha. eða samtals 33,5 ha. Í landið hefur verið plantað töluvert af trjám.
Á landinu eru tvö 25 fm. hús. Annað er fokhelt en búið er að innrétta hitt en þar á eftir að leggja rafmagn.
Til greina kemur að selja húsin til brottflutnings.
Helluland er staðsett ca. 15 km. frá Stykkishólmi. (Frá Stykkishólmsvegi eru ca. 5 km.eftir Skógarstrandarvegi að landinu).
Ekki eru komnar vatns- rafmagns eða frárennslislagnir á svæðið.