73,9 fm. sumarbústaður sem stendur á 6.894 fm. eignarlóð.
Bústaðurinn er í skipulögðu sumarhúsahverfi í Sauraskógi sem er í ca. 10 km. fjarlægð frá Stykkishólmi.
Bústaðurinn skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og samliggjandi eldhús og stofu. Í risi er manngegnt svefnloft.
Gólfborð eru á öllum gólfum nemaá baðherbergi þar sem eru flísar.
Ágætar innréttingar eru í bústaðnum og í þvottahúsi er lagt fyrir þvottavél.
Allur búnaður sem í bústaðnum er fylgir en í honum hefur verið rekin ferðaþjónusta.
Góður sólpallur með harðviðardekki er við bústaðinn og frá honum er gott útsýni.
Lóð er birkivaxin.