87,3 fm. íbúð ásamt 37,7 fm. sambyggðum bílskúr í steinsteyptu parhúsi byggðu árið 2004.
Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi hol, stofu og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Innangegnt er um þvottahús í bílskúr og í enda hans er herbergi sem nýtist sem svefnherbergi.
Flísar eru á forstofu, þvottahúsi og hluta bílskúrs, dúkur á baðherbergi en parket á öðrum gólfum.
Ágætar innréttingar eru í íbúðinni.
Sjálfvirk hurð er á bílskúr.
Lóð er gróin og á baklóð er ca 7 fm. geymsluskúr. Steypt stétt er framan við húsið og á bílastæði er jarðvegsgrindur.