81,9 fm. íbúð á efstu hæð í þriggja hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi byggðu árið 1976. Í húsinu eru 7 aðrar íbúðir.
Íbúðin skiptist í gang, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stofu. Út af stofu eru svalir.
Nýlegt parket er á gangi, stofu, herbergjum og eldhúsi og nýlegar flísar eru á baðherbergi.
Góðar innréttingar eru í íbúðinni og eru tæki á baðherbergi nýleg.
Gluggi í stofu og svalahurð eru nýleg.
Geymsla er í kjallara. Lóð frágengin og bílastæði eru við gafl hússins.
Að utan er húsið klætt með steni.
Skemmtilegt útsýni er frá íbúðinni sem lítur vel út.