115 fm. einbýlishús á einni hæð byggt árið 1984. Húsið er einingahús svokallað "Asparhús".
Húsið skiptist í forstofu, samliggjandi hol og stofu, eldhús, búr, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þá er geymsluloft yfir hluta íbúðar.
Parket er á holi, stofu og herbergjum, dúkur er á á forstofu og baðherbergi og nýjar flísar eru á eldhúsi.
Ágætar innréttingar eru í húsinu. Innréttingar á baðherbergi og eldhúsi voru endurnýjaðar árin 2015 og 2016.
Nýtt gler er í gluggum hússins og húsið hefur alltaf notið góðs viðhalds.
Góður sólpallur er út af stofu. Í garði er lítill geymsluskúr.
Möl er á bílastæði.