85,5 fm. endaíbúð á einni hæð í þriggja íbúða raðhúsi byggðu árið 1994.
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Flísar eru á forstofu, parket á holi, stofu, eldhúsi og herbergjum en dúkur er á baðherbergi og þvottahúsi. Útihurð er á þvottahúsi.
Upprunalegar innréttingar eru í eldhúsi og baðherbergi og er þær í ágætu ástandi. Skápar eru í herbergjum.
Framan við húsið (að sunnanverðu) er hellulögð stétt, sólpallur og malbikað bílastæði fyrir tvo bíla.
Skemmtilegt útsýni er frá íbúðinni til norðurs og nýtur það sín vel úr stofu.
Að utan er húsið klætt með steni klæðningu.