114,4 fm. einbýlishús byggt úr timbri árið 1983 ásamt 37,8 fm. bílskúr byggðum árið 1994.
Húsið er einingahús, svokallað "Asparhús".
Húsið er á einni hæð og skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, búr, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofu. Geymsluloft er yfir forstofu og er farið upp á það úr þvottahúsi.
Ágætar innréttingar eru í húsinu. Flísar eru á forstofu, eldhúsi og baðherbergi,og parket á holi, stofu og herbergjum.
Úr stofu er gengið út á sólpall.
Bílskúr er upphitaður og einangraður og á honum er sjálfvirk hurð.
Lóð er gróin og á henni er mikill trjágróður.
Þak var yfirfarið og málað sumarið 2025. Þá hafa neysluvatnslagnir verið endurnýjaðar og flestir rafmagnstenglar.