Æsufell 2, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
48.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
58 m2
48.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1972
Brunabótamat
29.450.000
Fasteignamat
42.900.000

Nánari upplýsingar veittar á skifstofu í síma 438-1199 og fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected]

54,3 fermetra íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðinni fylgir 4,6 fermetra geymsla í kjallara. Íbúðin er vel skipulögð með rúmgóðar svalir út af svefnherbegi.

Íbúð skiptist í anddyri, stofu, eldhús, eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Opið er milli eldhúss og stofu.

Í anddyri eru flísar í góðu standi. Góð hirsla er fyrir ofan fatahengi.

Eldhús er flísalagt. Innréttingar eru í góðu ástandi. Uppþvottavél fylgir með kaupum. Eldavél er komin til ára sinna en í fínu ástandi.

Á stofu er nýlegt parket í góðu ástandi. Stofan er rúmgóð með stórum glugga sem veitir góða birtu. Inn af stofu er gengið í svefnherbergi.

Svefnherbergi er rúmgott. Gott skápapláss er í herberginu. Inn af herbergi er gengið út á rúmgóðar svalir. Svefnherbergið er með upprunalegum dúk á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt. Ástand innréttinga er gott og skápapláss ágætt. Á baðherbergi eru bæði sturta og baðkar. Bak við skáp eru tengi fyrir þvottavél, sem hafa ekki verið notuð.

Nýlega hefur verið skipt um glugga við svalir og svalahurð.

Í íbúðinni er dyrasími og lyfta er í húsinu.  

Í garði er leikvöllur. Stórt bílastæði eru á lóðinni og stutt í almenningssamgöngur.

Íbúðin er í góðu ástandi og ber þess merki að hafa verið vel viðhaldið.

Sameign er í snyrtileg og í góðu ástandi. Þrif eru aðkeypt. Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu. Í kjallara er sameiginleg þvottaaðstaða. Húsið er almennt í góðu ástandi.

Staðsetning íbúðarinnar er góð og stutt í alla helstu þjónustu.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.